|
Heimasíða alþjóðadeildar IPA komin í lag |
|
Skrifað af: Ingvar Guðmundsson
|
|
Laugardagur, 12. maí 2012 22:12 |
|
Ágætu félagar
Heimasíða alþjóðadeildar IPA sem og heimasíða IPA húsanna er komin í lag og því hægt að kynna sér efni þeirra á ný.
Hægt er að kynna sér þessar síður með því að smella á tengla hér hægra megin á síðunni.
|
|
Síðast uppfært: Laugardagur, 12. maí 2012 22:17 |
|
|
Bilun á heimasíðu alþjóðadeildarinnar |
|
Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
|
|
Miðvikudagur, 02. maí 2012 16:38 |
|
Sælir félagar nær og fjær. Því miður er bilun á heimasíðu alþjóðadeildar IPA og því ekki hægt að skoða til dæmis þau hús sem eru í boði til leigu. Við setjum inn tilkynningu hér um leið og síðan kemst í lag.
Kveðja stjórn IPA á Íslandi
|
|
Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 12. apríl 2012 11:15 |
|
Sælir félagar nær og fær. Eins og flestir vita þá var aðalfundur IPA á Íslandi á dögunum. Þar var kjörin ný stjórn og eins og kemur fram í frétt hér að neðan um aðalfundinn þá var undirritaður kjörinn nýr forseti deildarinnar. Það er ætlun mín að halda áfram því góða starfi sem fyrri stjórnir hafa unnið. Ég vil nota tækifærið og þakka þeim stjórnarmönnum sem hættu störfum kærlega fyrir mikið og gott starf undanfarin ár. Það er ætlun okkar hjá IPA á Íslandi að reyna að gera meira fyrir félagsmenn á komandi mánuðum. Ég vil benda félögum á að skoða síðu alþjóðastjórnarinnar en tengill inn á hana er hér til hliðar, einnig bendi ég félögum á að skoða IPA húsin og hvað þar er í boði, en nokkuð úrval er af ódýrri gistingu fyrir IPA meðlimi um allan heim. Þá er ekki tæmandi listi um möguleika inni á síðunni en endilega hafið samband við stjórnar meðlimi og þeir geta leiðbeint ykkur nánar.
Á síðasta ári lét IPA á Íslandi prenta T-boli með merki félagsins. Þeir eru til sölu í "búrinu" á Hverfisgötu og eru til í hvítu og rauðu. Verð á bolunum er 1.500 kr. Sjá má mynd af rauða bolnum hér að neðan.
Þá er einnig ætlun okkar að gera aðgengilegra fyrir félagsmenn að kynna sér þann aragrúa af viðburðum sem í boði er fyrir félagsmenn um allan heim. Það er von mín að þessi góði félagsskapur verði enn öflugri í nánustu framtíð. Með kærri kveðju Einar Guðberg Jónsson, forseti IPA íslensk deild.

|
|
Skrifað af: Ingvar Guðmundsson
|
|
Fimmtudagur, 15. mars 2012 12:06 |
|
Þann 2. mars síðastliðinn var haldinn aðalfundur IPA íslandsdeildar. 25 manns mættu á fundinn. Á dagskrá voru venjubundin aðalfundarstörf.
Kosið var til stjórnar og urðu þónokkrar breytingar í stjórn deildarinnar.
Kristján Kristjánsson þáverandi forseti gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu og er honum þakkað óeigingjarnt starf í þágu deildarinnar síðastliðin 28 ár. Fyrstu 22 árin sem gjaldkeri deidarinnar og síðan 6 ár sem forseti.
Því var ljóst að kosinn yrði nýr forseti sem og breytingar urðu í öðrum stöðum í stjórn og varastjórn.
Einar Guðberg Jónsson var kjörinn forseti deildarinnar til þriggja ára, Baldur Ólafsson ritari og Ingvar Guðmundsson gjaldkeri, þeir eru einnig kjörnir til þriggja ára hver.
Aðrir stjórnarmenn eru kjörnir til eins árs og eru eftirtaldir:
Meðstjórnendur:
Gunnar Helgi Stefánsson, Hrannar Þór Arason, Ragnar Svanur Þórðarson og Sveinbjörn Ólafur Ragnarsson.
Varamenn:
Bergsteinn Karlsson, Dóra Björk Reynisdóttir og Magnús Jónasson.
Tveir aðrir stjórnarmenn til margra ára gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu en það eru þau Árni Pálsson sem verið hafði ritari og Ingibjörg Ásgeirsdóttir varaforseti. Eru þeim þökkuð góð störf.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 6 |