Myndir úr starfi

dublin1.jpg
ipa 3.jpg

    Tíðarandinn

log1918.jpg

Innskránin félagsmanna





Ferð Íslenskra IPA meðlima til Erlangen í Þýskalandi
Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson   
Föstudagur, 06. maí 2011 10:52

Nokkrir íslenskir IPA meðlimir tóku sig til í fyrra og skelltu sér í heimsókn til IPA deildar í Erlangen í Þýskalandi þetta voru þeir. Haukur Árni Hermannsson-Ísafirði, Ólafur Jón Jónsson-Ísafirði, Þorkell L. Þorkelsson-Ísafirði og Þorgeir A. Elíesersson-Reykjavík.

1

Þeir hafa skrifað ferðasögu sína og er hún birt hér á síðunni undir flokknum Aðsent efni, hér má sjá inngangsorð sögunnar.

Það var fyrir nokkru síðan að við félagarnir komumst í kynni við lögreglumann í Bæjaralandi, Marco Wölker.  Það var í gegnum sameiginlegt áhugamál, söfnun á lögreglumerkjum.  Sú hugmynd kviknaði hjá okkur að gaman væri að heimsækja félaga okkar til Þýskalands og var það nefnt við hann.  Þá kom í ljós að Marco var stjórnamaður IPA í Bæjarlandi, í borginni Erlangen og þá fóru hjólin að snúast fyrir alvöru.  Dagsetning var nefnd og var ákveðið að fara út seinnipartinn í maí, n.t.t. fimmtudaginn 20. Maí 2010.  Mikil vinna fór í gang hjá Marco félaga okkar, við að skipuleggja ferðina en það var ósk okkar að þessi ferð yrði öðrum þræði lögreglutengd.  Setti hann saman fjölbreytta dagskrá þar sem hinar ýmsu deildir og lið voru heimsótt, skólar, æfingasvæði, ásamt því að við vorum teknir opnum örmum af fjölskyldu Marcos á þessum tíma.  Hér á eftir fer ferðasaga okkar, við reyndum að vera duglegir við að skrifa hjá okkur atburði hvers dags, einskonar dagbók og má hér líta afraksturinn.



Síðast uppfært: Föstudagur, 06. maí 2011 10:58
 
Fréttir af aðalfundi 2011
Skrifað af: Ingvar Guðmundsson   
Fimmtudagur, 14. apríl 2011 14:06

Þann 11. mars síðastliðinn var haldinn aðalfundur IPA íslandsdeildar.  Ágætis mæting var á fundinn en á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf auk þess sem að dregið var úr umsækjendum um ferð á heimsþing IPA í Rúmeníu seinna á árinu í boði Vináttusjóðs IPA.

Kosið var til stjórnar og urðu aðeins breytingar á stjórnarsetu.

Ekki var kosið í stöður forseta, ritara og gjaldkera þetta árið þar sem að kjörtímabil þeirra er ekki lokið en eftirtaldir voru kjörnir til stjórnarsetu í eitt ár:

Meðstjórnendur:

Ingibjörg Ásgeirsdóttir, Sveinbjörn Ragnarsson, Ingvar Guðmundsson og Baldur Ólafsson

Varamenn:

Hrannar Arason, Gunnar Helgi Stefánsson og Hafrún Elma Símonardóttir

 

Eftirtaldir voru síðan dregnir úr potti vináttusjóðs:

Einar Helgi Aðalbjörnsson og Kristján Friðþjófsson.

Sveinbjörn Halldórsson og Ragnar Jónsson voru dregnir út til vara.

 

Að lokum var síðan kynning á alþjóðlegu golfmóti sem að fyrirhugað er árið 2013 í tilefni 50 ára afmælis íslandsdeildar IPA.  Vonast er til að þátttaka í mótinu verði góð og að um reglulegan viðburð geti orðið að ræða.



 
Aðalfundur IPA 2011
Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson   
Miðvikudagur, 09. mars 2011 09:45

Aðalfundur International Police Assosiation, íslensk deild.

 Aðalfundur IPA íslensk deild fer fram föstudaginn 11. mars 2011. kl. 16:00.  í fundarsal fyrsta hæð, (gamli upplestrarsalurinn) á lögreglustöðinni við Hverfisgötu 113-115.

1.Skýrsla félagsstjórnar og afgreiðsla umboða.

2. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar félagsins.

3. Lagabreytingar.

4. Stjórnarkjör. (Til stjórnarkjörs eru allir nema forseti, ritari og gjaldkeri.)

5. Árstillag.

6. Önnur mál. 

Undir þessum lið verður dregið úr innsendum óskum sem borist hafa Vinasjóði um að fara til Rúmeníu.

Við hvetjum félaga til þess að mæta á fundinn, þeir sem ekki vita hvað IPA stendur fyrir, eru hvattir til að koma á fundinn og kynna sér það.

Servo Per Amikeco



 
Langar þig til Rúmeníu í haust !
Skrifað af: Ingvar Guðmundsson   
Þriðjudagur, 01. mars 2011 23:06

Stjórn IPA á Íslandi hefur ákveðið að senda tvo félagsmenn á heimsþing IPA í Búkarest Rúmeníu dagana 20.-25.september 2011. Þeir félagsmenn sem hafa áhuga geta sent inn umsókn á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Dregið verður úr innsendum umsóknum á aðalfundi IPA, íslenskrar deildar, sem áætlaður er þann 11. mars 2011. Hér er tengill á dagskrá gesta heimsþingsins. Neðsti tengillinn af þremur sýnir dagskrá fyrir gesti.

Að fara á svona þing er ólýsanleg skemmtun og gott tækifæri til að kynnast lögreglumönnum alls staðar frá í heiminum. Gist er á Rin Grand Hotel nærri miðborg Búkarest. Hér er tengill á það hótel.

Umsóknarfrestur er til klukkan 12:00 þann 11.mars n.k. Eingöngu meðlimir IPA, íslenskrar deildar, geta sótt um. Þeir sem hafa áhuga á að ganga í félagið er bent á að hafa samband við  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , gjaldkera deildarinnar. Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu okkar http://www.ipa.is/



Síðast uppfært: Þriðjudagur, 01. mars 2011 23:09
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 5

    IPA-tenglar

    Tilkynningar

Ný vefsíða

Velkomin(n) á vefsíðu International Police Association, Íslensk Deild. 

Tekið hefur verið í notkun nýtt vefumsjónarkerfi og þar af leiðandi hefur útlit síðunnar breyst talsvert.  Með þessu nýja kerfi vonumst við að hægt verði að miðla upplýsingum til félaga á skjótvirkari hátt en hefur verið undanfarin ár. 
Meðal nýjunga er lokað svæði fyrir félagsmenn deildarinnar þar sem ítarlegri fréttir og upplýsingar munu verða birtar.  Til að fá aðgang að lokaða svæðinu þurfa félagsmenn að senda beiðni með tölvupósti til deildarinnar.  Aðgangsheiti og lykilorð verða síðan send tilbaka.  Einnig væri gott að fá ábendingar um villur á síðunni eða hugmyndir að efni til að birta.    

Stjórn deildarinnar

Auglýsing