Velkomin(n) á vefsíðu International Police Association, Íslensk Deild. Tekið hefur verið í notkun nýtt vefumsjónarkerfi og þar af leiðandi hefur útlit síðunnar breyst talsvert. Með þessu nýja kerfi vonumst við að hægt verði að miðla upplýsingum til félaga á skjótvirkari hátt en hefur verið undanfarin ár. Meðal nýjunga er lokað svæði fyrir félagsmenn deildarinnar þar sem ítarlegri fréttir og upplýsingar munu verða birtar. Til að fá aðgang að lokaða svæðinu þurfa félagsmenn að senda beiðni með tölvupósti til deildarinnar. Aðgangsheiti og lykilorð verða síðan send tilbaka. Einnig væri gott að fá ábendingar um villur á síðunni eða hugmyndir að efni til að birta. Stjórn deildarinnar.
|

|
|
Forsíða
|
|
Við viljum benda félögum okkar á að 1. - 8. ágúst 2010 verður vináttuvika í Durham á Englandi til að fagna 60 ára afmæli IPA deildarinnar þar. Durham er staðsett á norð-austur Englandi. Endilega skoðið tengil hér og kynnið ykkur málið. Frekari upplýsingar veitir Einar Guðberg Jónsson, gjaldkeri IPA í síma 8431534.
|
|