Vináttusjóður IPA Íslensk Deild var stofnaður á árinu 2002. Markmið hans er að efla kynni og vináttu á milli félaga Íslensku Deildarinnar og erlendra félaga með því að styrkja félaga deildarinnar til að taka þátt í atburðum á vegum annarra IPA deilda, fyrst og fremst erlendis. Fjárframlag úr sjóðnum skal nýta til að greiða fargjöld og þátttökukostnað eftir ákvörðun stjórnar hverju sinni. Styrki úr sjóðnum geta aðeins félagar deildarinnar hlotið að undanskildri kjörinni stjórn á hverjum tíma.
Árið 2003 fóru þrír félagar á vegum Vináttusjóðs á heimsþing IPA sem var haldið í maímánuði í Þrándheimi í Noregi og í september 2005 fóru tveir félagar á IEC-þing IPA sem haldið var í Dublin á Írlandi. Í ár er stefnt að tveir félagar fari á heimsþing IPA sem verður haldið í Ljubljana Slóveníu 19. - 24 september
|